Nú er alveg mál að segja aðeins frá helginni sem var
að líða!
Ég ákvað á miðvikudaginn að skella mér suður um helgina
til þess að fara á GusGus tónleikana. Ætlaði ekki að fara fyrr en á
laugardeginum en svo ákvað ég að skella mér bara á
föstudeginum. Planið var nú bara að taka því rólega það kvöld en
allt varð fyrir ekki, þegar Krissa og Hildur náðu í mig á
flugvöllinn voru þær í svona líka blússandi gír og Krissa komin
ágætlega í glas. Það var bara brunað heim, tekið sig til og beint á
Vegamót þar sem við hittum þá félaga Bora og Burak. Verð nú að
segja að til að byrja með var ég svona svolítið efins með þessa
gaura út af því að maður þekkti þá ekki og svoleiðis en þeir
reyndust vera alveg magnaðir. Rosalega skemmtilegir og bara
almennilegir og kurteisir. Tala nú ekki um hvað þeir splæstu
mikið
Þeir keyptu mat á liðið og bjóra og skot og alles. Planið
um að taka því rólega þetta kvöld fór sem sagt í
vaskinn.
Eftir að við vorum á Vegamótum fórum við á barinn og þar
var hörku fjör. Segja má að Krissa hafi farið á kostum. Já
bóndabeygjan sjálf var helvíti góð þetta kvöld. Ég var farin að
kvíða fyrir þynnku daginn eftir þannig um tvö leytið fór ég að
sturta í mig vatni. Svo bara um þrjú fór ég heim með Tinnu og gisti
þar. Þrátt fyrir alla þessa vatnsdrykkju fékk ég þynnkuhausverk
dauðans, þessi helvítis skot fara svo roosalega í mann.
Einhverntíman eftir hádegi koma svo Krissa og Ásrún til Tinnu og
Ásrún stingur af til að baka fyrir tengdó eða eitthvað
þvíumlíkt!
Me, Kris, Tinna and Dagur fórum í kringluna og á
Makkann... I love the makk. Svo var bara enginn tími til neins
þannig við Krissa tókum okkur til heima hjá Tinnu fyrir kvöldið.
Tinna því miður kom ekki með okkur.
Við fórum á Apótekið að borða. Alveg magnað. Þar má segja
að við höfum alltaf verið á fyrsta hvítvínsglasinu. Alltaf
þegar það fór að minnka í því þá kom þjónn og hellti meira í
glasið. Svo smakkaði ég sushi túnfisk og á virkilega erfitt með að
viðurkenna það að mér fannst hann bara helvíti góður. Eftir þetta
lá leiðin í partý heim til Inga. Þar voru allir í helllvíti góðum
gír enda allir á leið á GusGus.

Já svo auðvitað tókum við öll taxa á Nasa og stuttu eftir
að við mættum þangað stigu GusGus á svið og þetta var ekkert
EÐLILEGA GAMAN!!! Showið, tónlistin auðvitað og tala nú ekki um
Daníel Ágúst var allt alveg GEÐVEIKT. Men alive samt hvað þessi
maður er ógeðslega svalur!!!¨

Ekkert eðlilega heitur!!! Svo var hann svo ógeðslega
svalur á sviðinu!!! Mine!

Á þessari mynd má nú sjá glitta í flest okkar, Haffi,
Hildur, Svala, Ég, Krissa, Bora, Ingi og Burak
Geggjað stuð
Mættum þarna geðveikur hópur eitthvað, þetta er bara partur af
okkur, hahaha
Svo eftir gusgus þegar fólk var bara ennþá að dansa
gerðist eitt rooosalegt. Ég fór allt í einu að taka eftir konu,
mjög mjög mjög feitri að dansa alveg virkilega asnalega. Sjáum
við hana svo vippa sér úr peysunni og var hún í þessum líka
hvíta og fagra ömmubjóstahaldara. Hvít brók náði alveg lengst upp á
maga og þarna hálf ber að ofan hélt hún áfram að dansa. Var alltaf
að skella sér niður í splitt og spígat, geðveikislega liðug og
feit, hehe þetta var bara fyndið. Fólk var búið að mynda hring í
kringum hana, svo henti hún sér á bakið og fór að reyna að breika.
Þetta var rooooosssalegt. Og þessi kona hefur verið ekki nema rétt
tæplega 30 eða eitthvað!!! Allavega hef ég aldrei séð annað eins!!
Rooosalegt.
Svo gisti ég heima hjá Hildi og flaug svo aftur heim í
gær, sátt eftir snilldar helgi!
Já ég held að þetta sé orðið nógu gott í bili, langar
bara að þakka ykkur stelpur og auðvitað Bora og Burak fyrir
snilldar helgi, þó svo að þeir lesi þetta ekki og ef þeir myndu
gera það myndu þeir ekki skilja
"Cause every time we touch"
Kv. Björk